Sjúkratryggingar

Við aðstoðum viðskiptavini okkar við umsóknir til Sjúkratrygginga Íslands. Hér að neðan eru upplýsingar til að glöggva sig betur á þátttöku Sjúkratrygginga Íslands í tannréttingameðferðum.

 

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða hluta kostnaðar vegna tannréttinga. Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta kostnaðar við nauðsynlegar tannréttingar samkvæmt ákvæðum IV. og V. kafla reglugerðar 451/2013.

Skilyrði er að þjónustan sé veitt af sérfræðingi í tannréttingum.  Bæði tannlæknir og einstaklingur skrifa undir umsókn, sem tannlæknir útbýr fyrir einstaklinginn.

Ef einstaklingur er með klofinn góm, meðfædda vöntun margra fullorðinstanna eða sambærilega alvarlegan vanda

Kafli IV í reglugerð nr. 451/2013
Í þessum tilvikum greiða Sjúkratryggingar Íslands 95% kostnaðar.

Önnur alvarleg tilvik sem krefjast meðferðar með spöngum
Kafli V í reglugerð nr. 451/2013

Sjúkratryggingar Íslands veita styrk að upphæð kr. 100.000 vegna tannréttingameðferðar með föstum spöngum á a.m.k. 10 fullorðinstennur annars gómsins en kr. 150.000 vegna slíkrar meðferðar beggja gómanna.

Skilyrði er að meðferð með föstum tækjum hefjist fyrir 21 árs aldur og að viðkomandi hafi ekki áður fengið styrk vegna tannréttinga.

Vegna umsókna sem samþykktar voru fyrir 15. júlí 2014 greiðast styrkirnir í tveimur hlutum með tólf mánaða millibili, 50.000 kr. í hvort skipti, vegna meðferðar annars gómsins, en þremur hlutum vegna meðferðar beggja gómanna.

Styrkir vegna umsókna sem samþykktar eru eftir 15. júlí 2014 eru greiddir til tannréttingasérfræðings jafn óðum og kostnaður fellur til uns styrkupphæðin er að fullu endurgreidd.

Sérfræðingur í tannréttingum fyllir út eyðublaðið “Umsókn um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna tannréttinga – alvarlega tilvik” vegna barna með klofinn góm og sambærileg tilvik en eyðublaðið “Umsókn um styrk sjúkratrygginga vegna kostnaðar við tannréttingar” fyrir aðra umsækjendur. Tannlæknir og einstaklingur/forráðamaður skrifa svo undir og senda til SÍ

Ferðakostnaður vegna tannréttinga

Reglugerð nr. 871/2004

Styrkir eru veittir fyrir tveimur ferðum vegna tannréttinga á ári. Skilyrði er að viðkomandi njóti styrks vegna tannréttinga. Einnig er greiddur styrkur vegna ítrekaðra ferða sökum alvarlegustu tilvikanna.

Sækja þarf um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands fyrirfram, í öllum tilvikum, bæði vegna tannréttinga og ferðastyrkja.